Brunnar 2, 450 Patreksfjörður
71.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
178 m2
71.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1961
Brunabótamat
90.100.000
Fasteignamat
57.100.000

DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;

Gott einbýlishús sem hefur farið í töluverðar endurnýjanir.

Einbýlishús við Brunna 2 á Patreksfirði
Húsið er steypt, skráð 178 fm að stærð, húsið er klætt að utan og á tveimur hæðum.

* Búið er að endurnýja eldhúsið
* Gólfhiti er í eldhúsi, borðstofu og stofu á efri palli
* Búið er að endurnýja gólfefni og loft í stofu og borðstofu
* Búið er að endurnýja allar vatnslagnir
* Búið er að endurnýja bæði baðherbergin
* 4-5 Svefnherbergi eru í húsinu (Búið er að sameina 2 barnaherbergi í 1)
* Nýlegur sólpallur er við húsið
* Þak hefur verið endurnýjað 
* Gluggar í stofu hafa verið endurnýjaðir
* Harðparket á allri eigninni að frátöldu votrými
* Hljóðplötur eru í lofti með innbyggðri lýsingu


Lýsing á eigninni: 
Forstofan er flísalögð. Inngengt er á gestabaðherbergi frá forstofu, gestabaðherbergið var nýlega endurnýjað frá A til Ö, þar er upphengt salerni og handlaug.
Gengið er inn í hol/borðstofu frá forstofu, gólfhiti, stór gluggi og svalahurð þar sem er útágengt á sólpall. (Smíði er hafin á stækkun á sólpallinum) Eikar hljóplötur eru í lofti sem setja skemmtilegan svip þegar að gengið er inn í eignina.
Sama harðparket er á Eldhúsi, borðstofu, stofu, svefngangi og öllum svefnherbergjum.
Netplögg til staðar í holi. Eldhús er allt nýuppgert með glæsilegri svartri innréttingu frá Kvik, innbyggð uppþvottavél er í innréttingu, tækjaskápur, búrskápur og gert er ráð fyrir amerískum ísskáp í innréttingu. Innbyggður örbyljgjuofn/ofn combo ásamt bakaraofni. Lítið kaffihorn ásamt morgunverðaborði inn af eldhúsi. Skápar undir borði í kaffihorni. 
Stofa er á efri palli. Sömu eikar hljóðplöturnar eru í stofu lofti ásamt innfelldri lýsingu. Stofan er stór með veglegt útsýni yfir Patreksfjörð. Netplögg fyrir sjónvarp er til staðar.
Inn af holi er svefnherbergisgangur sem hægt er að loka af með hurð. 
Hjónaherbergi er mjög rúmgott, loftið var tekið upp þegar að það var endurnýjað, sérsmíðaður skápur með svörtum rennihurðum frá Kvik.
Baðherbergið er allt nýuppgert með stórri walk in sturtu með innbygðum blöndunartækjum í vegg, reyklitað sturtugler. Upphengt salerni og svört innrétting frá Kvik (sú sama og í eldhúsinu) Hringspegill fyrir ofan vask.
Barnaherbergi 1. Er nýtt sem skrifstofa í dag. Netplögg í herbergi.
Barnaherbergi 2. Sem áður voru 2 barnaherbergi, lítið mál er að breyta til baka og fjölga þannig svefnherbergjum. Netplögg til staðar.
Neðri hæð: Gengið er niður á neðri hæð frá eldhúsi í gegnum stigagang. Nýlegt teppi er á stiga.
Þvottahús er á neðri hæð og er það að mestu til upprunalegt. Tengi er fyrir þvottavél og góðar snúrur þar inni. Heitavatnsinntak er í þvottahúsi. Hægt er að ganga út á pall vestan við húsið frá þvottahúsi. Gott svefnherbergi / unglingaherbergi er á neðri hæð með tveimur gluggum, harparket á gólfi. 
Köld geymsla er undir húsinu og er hún óskráð.

Garður: Óupphitaður verkfæraskúr er í garði með rafmagni. Gólf hellulagt.
Vestan við húsið er stór og nýlegur sólpallur með rafmagni og búið er að gera ráð fyrir heitum potti. Útikrani er við pall. Innangengt í þvottahús af palli.
Austan við hús er búið að byggja grind fyrir sólpall (vantar klæðningu á dekk og veggi) sem verður með aðgengi að svölum á húsi og þaðan innangengt í borðstofu húss.

Ofanflóðasjóður er með framkvæmdir við hús og mun ofanflóðasjóður ganga frá lóð sunnanmegin við hús (fyrir neðan hús) þegar þær framkvæmdir eru klárar. Sjá teikningu á mynd.

 

Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.